Skrá gististað
Móttökustjórinn er öflugt bókunarkerfi fyrir Íslenska ferðaþjónustu. Notendum kerfisins gefst kostur á að selja þjónustu sína í gegnum marga vefi sem byggja saman sterkt sölunet.
Helstu kostir móttökustjórans
- Aðgangur að kerfinu er og verður ókeypis
- Gegnum kerfið býðst þér að selja gistingu á fjölda vefja, bæði innlendum og erlendum.
- Kerfið er auðvelt í notkun og gefur þér kost á auka verulega nýtingu á gistirými
- Auðvelt er að skrá inn bókanir sem berast með tölvupósti eða í síma
Íslandsbókun
Íslandsbókun er fyrirtæki á Húsavík sem þjónustar aðila í ferðaþjónustu um allt land. Hjá fyrirtækinu eru þrjú stöðugildi við forritun, markaðssetningu, textagerð og leitarvélabestun.
Móttökustjórinn
Móttökustjórinn er bókunarkerfi fyrir gististaði af öllum gerðum. Í kerfinu getur þú haldið utan um allar bókanir, fylgst með bókunarstöðu og komið í veg fyrir yfirbókanir.
Bókunarbox
Gististaðir sem nota Móttökustjórann geta fengið bókunarbox á vefsíðu sína og þannig selt gistingu beint gegn aðeins 5% þóknun. Þetta sparar mikinn tíma sem annars fer í tölvupóstsamskipti eða að taka við bókunum í gegnum síma.