Móttökustjórinn
Móttökustjórinn er ókeypis bókunarkerfi fyrir gististaði af öllum gerðum. Í kerfinu getur þú haldið utan um allar bókanir, fylgst með bókunarstöðu og komið í veg fyrir yfirbókanir. Þróun kerfisins hófst vorið 2010 í samstarfi við Gistiheimili Húsavíkur. Sumarið 2011 fékk Íslandsbókun styrk frá AVS rannsóknarsjóði í sjávarútvegi til að ljúka þróun kerfisins og er það nú boðið ókeypis fyrir ferðaþjónustuaðila um allt land.
Í kerfinu er hægt að færa inn nýjar bókanir, skoða bókanir eftir dögum, halda skrá yfir herbergi, skrá bókanir á herbergisnúmer og halda utan um verðskrár. Kerfið er á vefnum og því aðgengilegt hvaðan sem er. Það hentar því vel fólki sem er mikið á ferðinni og tekur við bókunum í gegnum farsíma, því aðeins þarf nettengda tölvu til að geta skráð inn nýjar bókanir.
Aðgangur að kerfinu er og verður ókeypis. Notendum býðst að selja í gegnum söluvefi sem tengdir eru við kerfið og er þá tekin 5% þóknun. Ekki er þó nauðsynlegt að selja í gegnum vefina til að nota kerfið.
Íslandsbókun
Íslandsbókun er fyrirtæki á Húsavík sem þjónustar aðila í ferðaþjónustu um allt land. Hjá fyrirtækinu eru þrjú stöðugildi við forritun, markaðssetningu, textagerð og leitarvélabestun.
Móttökustjórinn
Móttökustjórinn er bókunarkerfi fyrir gististaði af öllum gerðum. Í kerfinu getur þú haldið utan um allar bókanir, fylgst með bókunarstöðu og komið í veg fyrir yfirbókanir.
Bókunarbox
Gististaðir sem nota Móttökustjórann geta fengið bókunarbox á vefsíðu sína og þannig selt gistingu beint gegn aðeins 5% þóknun. Þetta sparar mikinn tíma sem annars fer í tölvupóstsamskipti eða að taka við bókunum í gegnum síma.